Gárur handklæði lítið LJÓSBLÁTT
Gárur handklæði lítið LJÓSBLÁTT
share
Couldn't load pickup availability
Munstrið er innblásið af flæði vatnsins og þeim síbreytilegu formum sem myndast þegar yfirborðið gárar og brotnar. Litapallettan sækir kraft sinn í stórbrotna náttúru Fjallabaksleið, allt frá dempuðum jarðtónum til ríkulegra lita Brennisteinsöldu. Línan er Jacquard-ofin í Tyrklandi af sömu alúð og einkennir aðrar vörur Salún.
Handklæðin eru tilvalin til daglegra nota, hvort sem það er fyrir saununa, sundlaugina, ferðalög eða ströndina þar sem þau eru:
- Létt
- Rakadræg
- Þornar fljótt
- Pakkast vel
Stærð: 100x60 cm
100% tyrknesk bómull í jacquard vefnaði
Handklæðin okkar eru framleidd í Tyrklandi að hætti hinna tyrknesku Pestemal og Peshkir handklæða líkt og notuð eru í Hammam böðum, aldagamalli baðhefð sem hefur varðveist frá tímum Ottómanveldisins til dagsins í dag.
Peshkir handklæðin (100x60 cm) eru upprunalega ætluð fyrir hárið en Pestemal (90x170 cm) fyrir líkamann. Pestemal handklæðin eru einnig tilvalin sem sjöl eða teppi og peshkir sem gestahandklæði.
