deila
Skák handklæði stórt DRAPP
Skák handklæði stórt DRAPP
Skák munstrið er djarfur óður til köflótts salúnvefnaðar.
Köflóttan salúnvefnað má í dag helst finna á minjasöfnum, í Bústaðakirkju eða á nytjamörkuðum víðsvegar um landið.
Litir handklæðanna eru innblásnir af íslenskum vetri, líkt og hrímuð sina við fjallsrót á köldum, björtum vetrardegi.
Handklæðin eru tilvalin til daglegra nota, hvort sem það er fyrir sundlaugina, ferðalög eða ströndina þar sem þau eru:
- Létt
- Rakadræg
- Þornar fljótt
- Pakkast vel
stærð: 90x170 cm
100% tyrnknes bómull í jacquard vefnaði.
Handklæðin okkar eru framleidd í Tyrklandi að hætti hinna tyrknesku Pestemal og Perskir handklæða.
Slík handklæði eru notuð í Hammam böðum, aldagamalli baðhefð sem hefur varðveist frá tímum Ottómanveldisins til dagsins í dag.
Perskir handklæðin (100x60 cm) eru upprunalega ætluð fyrir hárið en Pestemal (90x170 cm) fyrir líkamann. Pestemal handklæðin eru einnig tilvalin sem sjöl eða teppi og perskir sem gestahandklæði eða viskastykki.